17. september 2006 klukkan 08:58
Hae!
Í dag fór ég í fyrsta skiptid út fyrir baejarmörkin sídan ég kom til Caxias. Vid fórum semsagt til baejanna hérna í kring sem eru túristasvaedi thessa hluta fylkisins. Thessir baejir voru allir stofnadir af thjódverjum og eru margir mjög thýskir í útliti. Sem er frekar fyndid thví ad svo eru pálmatré og kaktusar í gardinum :D Allar búdirnar tharna hétu líka Schneider eitthvad og Bauerhaus og svona. Vid fórum líka í gard og skodudum foss, thad er í fyrsta skipti sem ég hef séd foss sídan ég fór frá Íslandi! Vid vorum efst á fjalli/hól og svo var stigi alla leid nidur, 927 tröppur takk fyrir! Thad var ekkert mál á leidinni nidur, en ég, sem er búin ad sitja á rassinum ad gera ekki neitt í einnóg hálfan mánud núna, var laaaangseinust upp aftur.. En thad var allt voda fallegt tharna og gaman ad sjá thetta, ég tók milljón myndir og set thaer inn vid taekifaeri.
Talandi um myndir thá setti ég nokkrar um daginn, thaer eru í möppunni 13. september, ég á eftir ad flokka thaer nánar. Thad tekur samt svo langan tíma ad setja thetta inn, thad er fáránlegt!
Baah! Mig langar svo í sund! Arg. Einu sundlaugarnar hérna eru í líkamsraektarstödvum og thad kostar sko 3000 kr á mánudi af fara tvisvar í viku í sund! Thad er 400 kall í hvert skipti! Thá finnst mér nú 10 mida kort á 2000 ekki mikid.. Hvad thá árskortid! Og thad er med heitum pottum, gufu og sápu í sturtunni! Svona, drífidi ykkur í sund!
Já, ég thjáist semsagt af hreyfingarleysi. En thad er allt ad fara ad lagast í naestu viku held ég. Vona ég.
Eitt sem ég hef berid ad paela í er hvad umferdarlögin eru mikilvaeg. Bílbelti og svona. Hérna ertu oftast ekkert ad hafa fyrir thví ad vera í belti ef thú ert afturí, og meiradsegja tharf thad ekkert innan baejarmarka. Samt keyra allir frekar hratt og svína á fullu. Krakkar eru líka oftast bara laus, til daemis er Milena oft bara sofandi í midjunni ef vid förum eitthvad eda thá ad hoppa útum allan bílinn. Ef vid myndum lenda í árekstri thá myndi hún fljúga beint útum framrúduna. Thad er reyndar ekki thad ad thad séu ekki lög um ad krakkar (og adrir svosem) eigi ad vera í beltum, thad er bara ekki nóg af lögreglumönnum til ad framfylgja thví. Annad en á Íslandi.
Svo var ég ad fatta hvad Íslendingar eru frjáldlyndir. Fóstureydingar eru ólöglegar hérna, nema thér hafi verid naudgad eda yfirgnaefandi líkur eru á ad mamman lifi ekki faedinguna af. Ég fékk vaegt sjokk, enda minnsta mál í heimi ad fara í fóstureydingu án thess ad nokkur viti af á Íslandi, eins og okkur var sagt í kynfraedslu í 9. bekk..
Mér er alltaf ad detta eitthvad í hug sem ég get skrifad hérna, en svo gleymi ég thví alltaf thegar ég er loksins komin í tölvuna..
Hey! Ég gerdi annad staerfraediblad í skólanum og var med í umraedum um taeknifrjóvganir! Ég átti ad útskýra hvernig thad faeri fram á ensku (kennarinn skilur ekki einusinni ensku) en svo mundi ég ekki ordin og fékk ad segja á íslensku (skilur thad enginn heldur..) og thad eina sem kom út úr mér var: hérna.. já.. sko.. uuu.. og svo endadi ég á ad tala á ensku.. Ég er opinberlega búin ad gleyma hvernig á ad tala íslensku.. Úff, ekki nógu gott..
Já. Svo er ég ad fara í einhverskonar veislu á morgun held ég afthví ad einn fraendinn var ad "klára eitthvad í kirkjunni" eins og Tobias ordadi thad. Ég geri rád fyrir ad thetta sé ferming frekar en pestvígsla.
Hey já! Til ad koma í veg fyrir allan misskilning thá er maturinn hérna alls ekkert vondur. Í útskriftarveislunni um daginn tókst theim bara ad hitta á nákvaemlega thá fáu hluti af brasilískum mat sem ég borda ekki, og hrúgudu svo parmesanosti á hitt sem ég borda venjulega. (ég borda semsagt ekki parmesanost..) Thau drekktu svo graenmetinu öllu í ediki sem er alls ekki málid thannig ad thad eina sem var eftir var ofsaltadi kjúklingurinn. Sídan thá hef ég bordad allt sem fyrir mig hefur verid sett med bestu lyst (svona oftast allavegana).
Og afmaelid sem var seinustu helgi var ekki hjá vinkonu Marlei (kemur ég..), en ég hef samt hitt hana ádur og thad gaeti vel verid ad hún hafi verid í graenni peysu thá. Thetta var semsagt ein af brjáludu dansfraenkunum sem átti afmaeli. Thegar vid komum voru allar konurnar ad elda matinn inní eldhúsi og drekka capirinha (vodka med ávöxtum og sykri minnir mig). Thaer voru voda forvitnar um mig og spurdu mig allt ad thví spjörunum úr, samt ekki alveg, ég fór bara úr jakkanum og treflinum. (hahaha) Thar var svo ein fraenka sem heitir CRis og var skiptinemi í bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Hún er 23 ára (átti afmaeli seinasta midvikudag) og ég hélt mig vid hana thad sem eftir var kvöldsins. Svo var maturinn til og thá voru thetta 6 eda 7 gerdir ad spagettíi! Med pestó (thad var gedveikt gott), hakki, osti, kjúklingahjörtum (hvad er málid med thau?), hvítlauk (thad var langbest!) og eitthvad fleira. Og svo náttúrulega kál og tómatar med ediki.. Thegar allir voru búnir ad borda (sem tók soldinn tíma) var komid ad eftirréttinum sem var ávextir og súkkuladifondú! Svo sungum vid afmaelissönginn nokkrum sinnum á medan fraenkan dansadi uppi á stólnum sínum. Eftir thetta tók svo vid trylltur dans af hálfu eldra fólksins og Cris. Thau vildu endilega kenna mér ad dansa eftir ad ég var búin ad útskýra ad thad vaeri enginn thjódardans á Íslandi (vikivaki er frá faereyjum!) og ég hef sjaldan séd svona mikil tilthrif. Thau dönsudu "funky" sem er svakalegt og svo ýmsa góda dansa vid brasilísk kántrílög. Ég dansdi meiradsegja vid afmaelisbarnid! Ég vil svo taka thad fram ad hún var ad verda 49 ára. Krakkarnir héldu sig ad mestu frá dansinum, nema Milena sem stód sig vel í funkyinu. Eftir afmaelid fór ég svo med Cris á bar thar sem einvherjir vinir hennar voru og var thad mjög gód tilbreyting frá sjónvarpsdagskránni..
Jaeja, thetta fer ad koma gott. Ég tharf ad fara ad sofa.. Verd ad vera hress í fermingunni/prestvígslunni á morgun!
Hey svo fór ég á tónleika med Gloriu trúnadarmanninum mínum á fimmtudaginn! Thar voru spilud brasilísk popplög frá 7. áratugnum sem var mjög skemmtilegt! Thetta var sinfóníuhljómsveit háskolans og fjórir voda fraegir söngvarar. Thad má til gamans geta ad hljómsveitin var í svörtum buxum og tuxedojakka (hvad heitir thad á íslensku?) og svo eins stuttermabolum (gulum, bleikum, raudum eda bláum) og converse all stars skóm! Meiradsegja stjórnandinn! (Hann var í bláum bol og raudum skóm) Thetta var stórmerkilegt.
En já, bless. Góda nótt. (svo heimta ég komment! thad er ekkert gaman ad skrifa ef tha kommentar enginn! ég er ekki sátt vid seinustu frammistödu ykkar! allir ad kommenta tvisvar! aaaaaaaa!) (afsakid, klukkan er ordin margt..)
(oh, ég aetladi ad skrifa um vedrid líka, thad verdur bara ad bída betri tíma.. Annars thá var 30 stiga hiti á midvikudaginn eda fimmtudaginn og 20-25 stig í svona 2 daga, en 10 stiga hiti og rigning thar á milli. Hver segir ad vedur á Íslandi sveiflist mikid?)
kþe (svo heimta ég komment! thad er ekkert gaman ad skrifa ef tha kommentar enginn! ég er ekki sátt vid seinustu frammistödu ykkar! allir ad kommenta tvisvar! aaaaaaaa!) (afsakid, klukkan er ordin margt..)